Blogg
kokkur í klæðum kjaftar:
28.4.2008
Betra er að hlaupa í spik en kekki.
Ég mæti í vinnuna á föstudagsmorgun snemma því það er ljósmyndari að koma til þess að mynda nokkra rétti. Ég græja þá og svo kemur ljósmyndarinn inn í eldhús til þess að mynda kokkinn! Ég hélt að það ætti bara að mynda réttina og ég alveg eins og drusla til fara, nývöknuð.. Týpiskt.
Nokkrir jákvæðir punktar við að fara að flytja
- Losna við að hlusta á fólkið á efrihæðinni vera að breyta eða færa húsgögnin tvisvar á dag!! Hvað þá ryksuga með mjög harðri ryksugu og þvílíkum hamagangi átta sinnum í viku!
- Losna við alla þessa ógeðslegu ketti sem eru hér breimandi daga og nætur
- Þarf ekki að keyra hring eftir hring til þess að finna mér bílastæði
- Fæ stærra eldhús
Nokkrir neikvæðir hlutir við að flytja
- Get ekki labbað í vinnuna
- Þarf að keyra langa leið og borga fyrir bílastæði
- Get ekki rölt niður í bæ á kaffihús þegar mér hentar
Vinnuhelgin var ágæt. Staffið ákvað að kíkja saman út á laugardagskvöldið eftir vaktina á Dillon. Fékk mér nokkra bjóra, en gat aldrei klárað neinn þeirra því fólkið var alltaf á eilífu flakki á milli staða. Ég var bara góð á því og fór snemma heim "edrú". Þökk fyrir það því það var ekki vottur af þynnku í mér daginn eftir fyrir utan hvað ég drakk mikið af orangedjús :)
Nú er gellan bara búin að kaupa sér árslíkamsræktarkort í fyrsta skipti á ævinni held ég bara svei mér það.. Hef átt einhver mánaðarkort áður fyrr, held samt ekki síðan ég var 18 ára.. Já fór í útsýnisferð í Hreyfingu, vá hvað það er flott stöð! Og nú er það bara einkaþjálfari og allur pakkinn .... En ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar hérna, tek EINN dag í einu
23.4.2008
Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur
Mér finnst Hornafjörður best í heimi!


Það var sem sagt yndislegt fyrir austan um helgina. Veðrið gat ekki verið betra og nýtti ég mér það og gekk Ægisíðuna með Tímoni og viðraði svo mömmu og pabba og gekk allt Óslandið. Myndavélin var alltaf með í för og ég er búin að skella nokkrum myndum í albúm.
Sýningin Rocky Horror var mergjuð! Systir mín kom mér á óvart og þvílíka hæfileika hefur stelpan!! Fannst hún sko standa upp úr he he he
Það var alveg dúndur stemmning í salnum og ég er svo að vona að sýningin verði sýnd einhverntíman hérna í bænum og þá ætla ég sko að skella mér aftur!!
Það var alveg dúndur stemmning í salnum og ég er svo að vona að sýningin verði sýnd einhverntíman hérna í bænum og þá ætla ég sko að skella mér aftur!!Annars fór helgin bara í afslöppun, spil með ömmu, borða hrikalega góðan mömmumat og spjall.
Ég er bara á fullu að pakka og mest allt komið í kassa, verður gott að koma sér fyrir í næstu viku í Hafnarfirðinum.
Nýr matseðill í gangi á Prima og brjálað að gera.
En þangað til næst
ykkar einlæg
HH
18.4.2008
Heima er best í hófi.
hæ hó! Ég er komin heim í heiðardalinn. það er að segja komin austur á Hornafjörð. Ég flaug ELDSNEMMA í morgun. var vöknið rúmlega sex fjúff.... gerist ekki oft. Var komin í loftið hálf átta og flugið var frábært (aldrei þessu vant) útsýnið geggjað, flugum nánast á Hvannadalshnjúk, svo lágt var flugið. Svo var geggjað að lenda í frábæru veðri. En ég ætla að dúllast með fjölskyldunni um helgina í góða veðrinu, göngutúrar og að sjálfsögðu fara á Rocky Horror! Ég er svo spennt að ég er að pissa í mig
Svo flýg ég aftur heim á sunnudaginn og held áfram að pakka niður í kassa, sem er þó komið langt á veg.
Svo flýg ég aftur heim á sunnudaginn og held áfram að pakka niður í kassa, sem er þó komið langt á veg.Árshátíð Primavera var haldin hátíðlega á sunnudaginn síðasta. Þetta var heldu betur óvissuferð. Hittumst upp á Höfða og allir vel útbúnir í snjókomuna (ótrúlegt það snjóaði líka á okkur í fyrra og svo kom vorið daginn eftir) Svo hófst eltingarleikurinn. Vorum á nokkrum bílum og allir í runu. Fyrsta stopp var í Eden í Hveragerði þar sem allir fengu ís
Svo fórum við upp að kirkjunni og þar biðu tveir gaurar eftir okkur. Okkur var skipt í þrjú lið og svo var farið í "amazing race" um alla Hveragerði. Fjúff þetta var svakalega gaman og tók þvílíkt á! Enduðum svo á því að allir(þ.e.a.s. þeir sem þorðu) fóru í hálfgerða aparólu (bundin við reipi) og farið yfir fossinn og ánna sem er í bænum. Svo lá leiðin aftur í borgina og eltingarleikurinn við forystubílinn hélt áfram. Á tímabili var ég farin að elta vitlausan bíl... hann var sko alveg eins og forystusauðurinn
En næsti áfangastaður var danskóli! Það var sjúklega fyndið. Gaman að segja frá því að danskennarinn er einmitt gaurinn sem er í nýja myndbandi júróbandsins, dökki strákurinn. Eftir nokkur spor fórum við í Salalaugina í bað og shjæn og þar eftir var haldið til lítið hús í Nauthólsvíkinni þar sem var grillað og drukkið mexicanskt áfengi eftir öllu. Enda var þemað Mexico. Myndir eru svo komnar inn!
Svo fórum við upp að kirkjunni og þar biðu tveir gaurar eftir okkur. Okkur var skipt í þrjú lið og svo var farið í "amazing race" um alla Hveragerði. Fjúff þetta var svakalega gaman og tók þvílíkt á! Enduðum svo á því að allir(þ.e.a.s. þeir sem þorðu) fóru í hálfgerða aparólu (bundin við reipi) og farið yfir fossinn og ánna sem er í bænum. Svo lá leiðin aftur í borgina og eltingarleikurinn við forystubílinn hélt áfram. Á tímabili var ég farin að elta vitlausan bíl... hann var sko alveg eins og forystusauðurinn
En næsti áfangastaður var danskóli! Það var sjúklega fyndið. Gaman að segja frá því að danskennarinn er einmitt gaurinn sem er í nýja myndbandi júróbandsins, dökki strákurinn. Eftir nokkur spor fórum við í Salalaugina í bað og shjæn og þar eftir var haldið til lítið hús í Nauthólsvíkinni þar sem var grillað og drukkið mexicanskt áfengi eftir öllu. Enda var þemað Mexico. Myndir eru svo komnar inn!Svo langar mig nú að óska þeim Lovísu og Finni til hamingju með nýja "starfið". Já lítill drengur fæddist fyrir átta dögum síðan. Algjör gullmoli.
En jæja ætla að tala við fjölskyldumeðlimi Bjarkar.
15.4.2008
Þessi maður er laaaaaaaang flottastur!
7.4.2008
Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni.
Ég er gjörsamlega búin að sniðganga þetta blogg mitt í aaaaaaaaaallt of langan tíma. But here I am now!
Páskarnir búnir. Þeir voru ágætir þetta árið.Fór í fermingu til Helen Maríu frænku á Skírdag og hitti fullt af ættingjum. Fékk fólk í mat og spil til mín á föstudeginum langa. Á laugardeginum var yndislegt veður og fórum við í sund og göngutúr. Páskadeginum eyddum við með fjölskyldu Andra og ég fékk eitt páskaegg
Þar var spilað og spjallað og borðað góðan mat. Eftir páska varð ég svona hrikalega veik! Fékk einhverja þvílíka flensu, með dúndrandi hausverk lon og don og hósta og hálsbólgu, ojjjjjj jakk algjör vibbi! En ég er nú nánast búin að jafna mig, ennþá smá ljótur hósti í mér..
Þar var spilað og spjallað og borðað góðan mat. Eftir páska varð ég svona hrikalega veik! Fékk einhverja þvílíka flensu, með dúndrandi hausverk lon og don og hósta og hálsbólgu, ojjjjjj jakk algjör vibbi! En ég er nú nánast búin að jafna mig, ennþá smá ljótur hósti í mér..Um helgina fór ég í aðra fermingaveislu hjá Kristjáni bróður hans Andra. Fór í kirkjuna (Vídalínkirkju)um morguninn, og fylgdist að sjálfsögðu með hárgreiðslum hjá skvísunum ( sem nota bene eru svo mikil börn! vá mér fannst ég svo fullorðinn þegar ég fermdist..) Þær voru nú bara í rólegri kantinum, ekkert að missa sig í krullum og látum, margar hverjar bara með spangir með skrauti á . En brá frekar að sjá fótbúnaðinn, þær voru nokkrar í þvílíkum pinnahælum! Hvað er málið?? Ég sá nú ekki fötin sem þær voru í því þær voru auðvitað í kuflunum. En eitt er víst, það er langt þangað til ég ætla í kirkju aftur....
Framundan er eintóm gleði! Á sunnudaginn kemur er komið að hinni geysifrægu árshátíð La Primavera! Það er óvissuferð og ég er orðin svakalega spennt! Á miðvikudaginn er planið að skella sér á fjórhjól með bróður hans Andra. Svo helgina 17-20 apríl er planið að fara austur að sjá Rocky Horror. og svo er ég að fara í klippingu!! Langar að gera eitthvað þvílíkt og annað eins! Látum okkur sjá...
Svo erum við "hjónin" að fara að flytja í maí! Já ætlum að skella okkur alla leiðina upp í Hafnarfjörðinn! Kvíði aðeins því að flytja úr miðbænum sem ég er búin vera í síðastliðin fjögur og hálft ár. Get sem sagt ekki labbað lengur í vinnuna eða á tjúttið
En hvað um það, þetta verður örugglega hrikalega huggulegt!
En hvað um það, þetta verður örugglega hrikalega huggulegt!En látum þetta gott heita í bili, en minni ykkur á að kíka á Rúv á laugardagskvöldið þar sem hún LITLA systir mín( sem var að fá bílpróf!) mun dansa á sviðinu þegar söngkeppni framhaldsskólana fer fram!
bless í bili
1.4.2008
Ótitlað
Þessi síða er í rugli, kemur blogg ASAP!
Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 70
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 140121
Samtals gestir: 44678
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:49:33
Eldra efni
Um mig
Nafn:
HeiðdísTölvupóstfang:
heiddischef@gmail.comMSN netfang:
hheiddis@hotmail.comAfmælisdagur:
3. ágústStaðsetning:
ReykjavíkÖnnur vefsíða:
http://www.facebook.com/profile.php?id=540042691MySpace vefsíða:
http://myspace.com/heiddischefTenglar
- Afþreying
- B2
- dd-unit
- DV
- Eyjan
- Feimin
- Flickr myndirnar mínar
- Freisting
- Gossip
- La Primavera
- Monitor
- people.com
- Pressan
- Rúv
- Slúður
- Slúðurhomminn
- Textavarpið
- US magazine
- Vísir
- Hornafjörður
- Horn.is
- Hornafjörður.is
- Hornafréttir
- Hornfirðingar
- Anna Jóna
- Árgangur 1981
- Guðrún Arna
- Hafrún
- Jóna Benný
- Jónsi
- Kibba
- Lilla syss
- Lovísa
- Magga
- Sibba
- Svana Björk
- Sædís
- Kokkabrjálæðingar
- Alma
- Helga
- Kokkalingarnir
- kokkur án klæða
- Sigurrós
- Litlu börnin
- Alexander Vilmar
- Alexandra Sif
- Andrea Kristín
- Ari Reynisson
- Eva Lilja
- Haraldur Marínó
- Helena Tindra
- Karen Líf
- Kristín María
- Lea og Saga
- Magnús Máni
- Marína Björk
- Sævar Þór Finnson
- útivist
- Ferðafélag íslands
- ferðalag.is
- Ganga.is
- útivist.is
- Vinir og kunningjar
- Laufey
- Bella
- Einar Logi
- Erna Hrönn
- Helga mágkona
- Margrét Rós
- Snjólaug
- Ættingjarnir
- Álfheiður
- Ellen
- Guðný
- Hallur
- Heiðrún
- Kristín Rut
- Védís


