Blogg
kokkur í klæðum kjaftar:
29.6.2008
........
- Fór í þrælskemmtilegt afmæli til hennar Svönu í gær eftir vinnu. Skvísan orðin 19 ára... ég gaf henni heimabakað kryddbrauð
Fórum svo í bæinn og skemmtum okkur sem aldrei fyrr!
- Ég er að vona að veðrið verði gott á mið og fimmt. þá verð ég í fríi og langar að ganga Leggjarbrjót... Hver vill með? Svo næstu helgi verð ég að vinna upp í Kjós í veiðihúsinu, alltaf gott að breyta um umhverfi.
- En ef einhver veit um vél í Toyotu corolla 2000 árgerð endilega látið mig vita því mín er víst að gefa sig... (hversu týpiskt er það??)
26.6.2008
Hvað haldiði...
... þegar einn sendillinn kemur með vörur í morgun, hleypur hann frekar harkalega upp stigana á bakvið, bölvar allsvakalega og svo heyri ég bara; helvítið drullaði yfir mig! Ég lít út um gluggann þá er hann þakinn í dúfuskít! ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð nema hvað að ég er mætt út og byrja að þurrka kallinn með tusku!! (datt mér ekki neitt betra í hug til að nota) hann er svona svakalega drullugur en ég þurrkaði á honum skallann (hárið aðeins farið að þynnast) heyrðu svo náði drullan gjörsamlega inn á skyrtuna og lak niður bringuna á kallgreyinu. Þá bauð ég honum nú bara að nota sturtuklefann... En ég er alla vega búin að hringja í meindýraeyði í dag

23.6.2008
enginn bangsi varð á mínum vegi..
Heil og sæl öll sömul!
Loksins er ég sest fyrir framan tölvuna og tilbúin í skrif. Síðustu tvær vikur eru búnar að vera aldeilis frábærar. Fórum hópur saman í Þórsmörk þarsíðustu helgi í alveg hreint yndislegu veðri. Gaman að segja frá því að það þekktust mjög fáir innan hópsins en það lét ekki aftra að okkur og vorum við ekki lengi að skella í okkur bjór og tala um lífið og veginn. Þeir sem þekkja mig vita hversu misheppin ég get verið... Þegar við vorum búin að finna okkur pláss til að tjalda í Básum fara allir að sjalfsögðu að setja upp sín tjöld og þar á meðal ég. Ég tek allt úr pokanum breiði tjaldið á jörðina og ætla að renna tjaldstöngunum í gegn, en HVAR eru tjaldstangirnar???? Svar: HEIMA! Byrjaði vel. En ég fékk bara að kúra uppí hjá hinum. Lét þetta ekki eyðileggja fyrir mér og þema kvöldsins var Irisch coffee! Þeir voru ansi margir drukknir til að halda í sér smá hita
En þetta er ekki búið. Daginn eftir er ég að rölta með Kibbu að skálanum, þar stendur fullt af fólki sem var sennilega að koma niður af fimmvörðuhálsinum. Við erum í hrókasamræðum og nei nei, mín í óreymdum gönguskónum og auðvitað flækjast reimarnar saman en ekki hvað? og ég bara steyptist í jörðina og ALLIR og svæðinu tóku að sjálfsögðu eftir því, hvítvínsglasið mitt skaust ég veit ekki hvert (sennilega yfir börnin) og nota bene þetta var fyrsta glasið mitt þannig að ég var ekki ölvuð... ég bað Kibbu um að ganga rösklega það sem eftir var að leiðinni.... ha ha ha hversu mislukkaður er hægt að vera. En við hlógum mikið að þessu. Svo á laugardagskvöldinu var brenna og mikið var sungið og enn var drukkið irish coffee
Heimleiðin var svo heldur betur erfið... En ég kom heim með sólbrennt nef.
En þetta er ekki búið. Daginn eftir er ég að rölta með Kibbu að skálanum, þar stendur fullt af fólki sem var sennilega að koma niður af fimmvörðuhálsinum. Við erum í hrókasamræðum og nei nei, mín í óreymdum gönguskónum og auðvitað flækjast reimarnar saman en ekki hvað? og ég bara steyptist í jörðina og ALLIR og svæðinu tóku að sjálfsögðu eftir því, hvítvínsglasið mitt skaust ég veit ekki hvert (sennilega yfir börnin) og nota bene þetta var fyrsta glasið mitt þannig að ég var ekki ölvuð... ég bað Kibbu um að ganga rösklega það sem eftir var að leiðinni.... ha ha ha hversu mislukkaður er hægt að vera. En við hlógum mikið að þessu. Svo á laugardagskvöldinu var brenna og mikið var sungið og enn var drukkið irish coffee
Heimleiðin var svo heldur betur erfið... En ég kom heim með sólbrennt nef.Þann 17. júní var ekki bara þjóðhátíðardagur íslendinga, þá kom Andri í land og við héldum upp á smá tveggja ára afmæli sem við áttum
En létum ekki þar við sitja og skelltu okkur í aðra útilegu. Þá fórum við á Þingvelli og ég ákvað að leyfa tjaldstöngunum að koma með í þetta sinn.. Fyrsta kvöldið vorum við þau einu sem tjölduðu á svæðinu, en það var stanslaus umferð allan sólarhringinn af veiðimönnum. Andri tók stöngina sína með, ég settist hjá honum en það kom smá vindhviða og eitthvað stakk mig í kálfann, jú jú flugan kræktist í kálfann á mér... (er að spá í að fara að ganga í brynju bara svona in case of...) En veðrið var frábært, pínu hvasst en við náðum að tjalda í svo góðri laut. Fórum svo út að borða í Valhöll og það er eitthvað sem ég geri aldrei aftur. Biðum heila eilífð eftir að fá að panta. Jæja svo panta ég mér naut og þjónnin spyr mig hvernig ég vilji fá það steikt, ég bið um að fá það medium rare. Eftir 40 mínútur kemur nautið, sem er svo mikið steikt að það sást ekkert rautt í því og það var eins og tyggigúmmi. Svo bragða ég á kartöflunni sem var með steikinni, þetta var kartafla sem ég hafði aldrei smakkað áður , hún var FROSIN! Ég bað um reikninginn loksins þegar þjóninn lét sjá sig aftur... En lét þetta nú ekki eyðileggja fyrir mér kvöldið, heldur fórum við aftur upp í tjald og spiluðum yatsy sem ég að sjálfsögðu vann
þetta var ofsalega notalegt þarna á Þingvöllum, fórum líka yfir á Laugarvatn í sund. Fórum svo upp í kjós og kíktum á gamla settið ( Leif og Jónínu) ætluðum líka að ganga upp að Glym, keyrðum eins langt í botn Hvalfjarðar gengum svo áleiðis, en merkingarnar þar eru ömulegar svo við gáfumst upp svo ég þurfti ég líka að fara að vinna. En Andri fór svo á sjó í dag...
En létum ekki þar við sitja og skelltu okkur í aðra útilegu. Þá fórum við á Þingvelli og ég ákvað að leyfa tjaldstöngunum að koma með í þetta sinn.. Fyrsta kvöldið vorum við þau einu sem tjölduðu á svæðinu, en það var stanslaus umferð allan sólarhringinn af veiðimönnum. Andri tók stöngina sína með, ég settist hjá honum en það kom smá vindhviða og eitthvað stakk mig í kálfann, jú jú flugan kræktist í kálfann á mér... (er að spá í að fara að ganga í brynju bara svona in case of...) En veðrið var frábært, pínu hvasst en við náðum að tjalda í svo góðri laut. Fórum svo út að borða í Valhöll og það er eitthvað sem ég geri aldrei aftur. Biðum heila eilífð eftir að fá að panta. Jæja svo panta ég mér naut og þjónnin spyr mig hvernig ég vilji fá það steikt, ég bið um að fá það medium rare. Eftir 40 mínútur kemur nautið, sem er svo mikið steikt að það sást ekkert rautt í því og það var eins og tyggigúmmi. Svo bragða ég á kartöflunni sem var með steikinni, þetta var kartafla sem ég hafði aldrei smakkað áður , hún var FROSIN! Ég bað um reikninginn loksins þegar þjóninn lét sjá sig aftur... En lét þetta nú ekki eyðileggja fyrir mér kvöldið, heldur fórum við aftur upp í tjald og spiluðum yatsy sem ég að sjálfsögðu vann
þetta var ofsalega notalegt þarna á Þingvöllum, fórum líka yfir á Laugarvatn í sund. Fórum svo upp í kjós og kíktum á gamla settið ( Leif og Jónínu) ætluðum líka að ganga upp að Glym, keyrðum eins langt í botn Hvalfjarðar gengum svo áleiðis, en merkingarnar þar eru ömulegar svo við gáfumst upp svo ég þurfti ég líka að fara að vinna. En Andri fór svo á sjó í dag... Ég naut sólarinnar í dag og fór í laugina og náði mér í enn meiri lit og ég held ég hafi ekki verið svona brún síðan ég var krakki! En jæja er með kjúkling í ofninum, kominn matartími hjá mér

Þar til næst!
13.6.2008
Góða helgi
Ég er farin í Þórsmörk yfir helgina! Ætla að gista í tjaldi, grilla mat, drekka góða drykki, fara í göngur, spila og hafa það huggulegt.
Eigiði góða helgi og sendið sólina til mín


10.6.2008
Eftir höfðinu dansar limurinn.
Ég var góð við mig í dag og fór í klippingu :)

Svo verð ég bara sætari með tímanum :)
4.6.2008
Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmalausar.
Sumarið komið, en bara þegar ég er í vinnunni. Þetta er alveg ótrúlegt. Það er (eiginlega) alltaf hrikalega gott veður þegar ég er að vinna en svo þegar ég kemst í frí byrjar að rigna, ég get svo svarið það að eitt kvöldið þegar ég gekk út af vaktinni, og það var búið að vera sól og stilla allan daginn, byrjaði að leka úr loftinu! Eigum við að ræða þetta eitthvað? í dag var ég í fríi, það var reyndar geðveik sól en bara af því ég var í fríi var ofsalega mikill vindur... En nóg af veðri..
Búið að vera mikið að gera undanfarið en var þó í heilu helgarfríi og Andri í landi. Þetta var ljúf helgi. Á föstudaginn röltum við í Fjörðinn og fengum okkur að borða, tókum svo strætó til Rvk svo við gætum nú fengið okkur öl og hvítvín. kíktum í búðir og á Kaffi hljómalind til að skoða listaverkin hjá Lucas sem vinnur með mér. Svakalega töff myndir. Kíktum svo í ostabúðina á Skólavörðustíg og keyptum eins myglaða osta og við gátum og grafið ærkjöt og grafið hrossakjöt, tókum svo strætó heim og opnuðum eina rauðvín og gæddum okkur á þessum herlegheitum.
Á laugardeginum skellti ég mér svo í ræktina (ýkt dugleg) og um kvöldið kíktum við á bæjarstemminguna í Hafnarfirði, enda var 100 ára afmælishátíð. Enduðum á Gamla Vínhúsinu í fjagra rétta dinner. Það kom mér bara á óvart hversu góður maturinn þar var. Svo komu Anna Soffía og Kjartan beint í irish coffee! sátum þar fram á nótt og plönuðum ferð á fimmvörðuhálsinn og laugarveginn í sumar....
Sunnudagur, sund og fiskveisla hjá tengdó.
Eftir vaktina í gær skelltum við Anna Soffía okkur í bíó að sjá Sex and the city. Váááááááá hvað þetta er yndislega yndislega frábær mynd! Ég er að sjálfsögðu búin að sjá alla þættina! Ég held ég hafi aldrei grátið og hlegið jafn mikið í bíó. Stundum litum við á hvor aðra með augun svoleiðis full af tárum, hrikalega vandræðalegar! ha ha heyrði snökkt héðan og þaðan úr salnum. Held líka að það hafi bara verið tveir karlmenn í öllum salnum.. En ef karlmenn vill einhverntíman reyna að skilja kvennmann ætti hann eindregið að sjá þessa mynd, hún segir allt sem segja þarf 

Hitti stelpurnar í dag. Fór alla leið upp í Grafarvog (hehe þetta er orðið svo langt) til Lovísu og litla gullmolans Sævars Þórs. Þar voru líka mæðgurnar Svana og Marína Björk. Borðuðum saman og ræddum lífið og tilveruna

Nú langar mig að fara að kíkja á Höfn bráðlega. Kíkja á fólkið mitt og sjá nýja húsið hjá Reyni og Helgu! Það er líka alltaf gott veður þegar ég fer þangað
Enda besti staður í heimi. Hvað var ég að spá að flytja þaðan og festast hér?? 
Enda besti staður í heimi. Hvað var ég að spá að flytja þaðan og festast hér?? 
Sumarið fer líklegast bara í vinnu. ætla að reyna að taka mér fríi um verslunarhelgina og nokkra daga þar í kring. þá fær Andri smá fríi. Svo fer sumarfríið mitt í vinnu upp í veiðihúsi frá miðjum ágúst og til miðjan september..
EN jæja þetta er nú orðið meiri vitleysan best að fara að hætta þessu.
Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 90
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 140018
Samtals gestir: 44653
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 13:23:09
Eldra efni
Um mig
Nafn:
HeiðdísTölvupóstfang:
heiddischef@gmail.comMSN netfang:
hheiddis@hotmail.comAfmælisdagur:
3. ágústStaðsetning:
ReykjavíkÖnnur vefsíða:
http://www.facebook.com/profile.php?id=540042691MySpace vefsíða:
http://myspace.com/heiddischefTenglar
- Afþreying
- B2
- dd-unit
- DV
- Eyjan
- Feimin
- Flickr myndirnar mínar
- Freisting
- Gossip
- La Primavera
- Monitor
- people.com
- Pressan
- Rúv
- Slúður
- Slúðurhomminn
- Textavarpið
- US magazine
- Vísir
- Hornafjörður
- Horn.is
- Hornafjörður.is
- Hornafréttir
- Hornfirðingar
- Anna Jóna
- Árgangur 1981
- Guðrún Arna
- Hafrún
- Jóna Benný
- Jónsi
- Kibba
- Lilla syss
- Lovísa
- Magga
- Sibba
- Svana Björk
- Sædís
- Kokkabrjálæðingar
- Alma
- Helga
- Kokkalingarnir
- kokkur án klæða
- Sigurrós
- Litlu börnin
- Alexander Vilmar
- Alexandra Sif
- Andrea Kristín
- Ari Reynisson
- Eva Lilja
- Haraldur Marínó
- Helena Tindra
- Karen Líf
- Kristín María
- Lea og Saga
- Magnús Máni
- Marína Björk
- Sævar Þór Finnson
- útivist
- Ferðafélag íslands
- ferðalag.is
- Ganga.is
- útivist.is
- Vinir og kunningjar
- Laufey
- Bella
- Einar Logi
- Erna Hrönn
- Helga mágkona
- Margrét Rós
- Snjólaug
- Ættingjarnir
- Álfheiður
- Ellen
- Guðný
- Hallur
- Heiðrún
- Kristín Rut
- Védís

