Blogg
kokkur í klæðum kjaftar:
24.7.2008
ótitlaður tittlingur
Guð minn góður, að hafa ekki heitt vatn er eins og að vera með einn arm! Það tók mig 2 tíma takk fyrir takk að vaska upp allt leirtauið sem var uppsafnað... og byrjað að mygla í!! JAKK! þar sem báðir stóru pottarnir mínir voru nú að sjálfsögðu drulluskítugir þurfti ég að sjóða vatn í litlum katli og þar af leiðandi þurfti ég að sjóða nokkrum sinnum svo eitthvað sæist af vatni í vaskinum. En þetta hófst allt á endanum með bara ogguponsu pirringi. En skemmtilegt að segja frá því að heita vatnið er EKKI ennþá komið... EN það er sem betur fer komið í sturtuna þannig að ég er hrein í bili..
Ég fór á allsvakalegasta djamm sem ég hef farið á í ansi langan tíma! Þannig er nú með mál og vexti að Andrew( yfirkokkurinn á Fifteen) og Dave (kokkur á Fifteen) kíktu í heimsókn í borg óttans og má segja að þeir hafi verið ansi hressir allan tíman. Eitt kvöldið buðu Leifur og Jónína okkur í mat (þar sem ég reyndar eldaði.... á meðan Leibbi sýndi strákunum eilítið brot af landinu) auðvitað var passað uppá að glösin væru vel full. Svo vildu strákarnir endilega kíkja í bæinn, mig langaði nú helst bara heim á þeim tímapunkti en lét þó til leiðast og skellti mér með þeim. Því hefði ég alveg geta sleppt því ég man hvort eð er mjög takmarkað eftir því! hahaha en svona punktar sem ég man eftir að þá var þetta svaðalegt fjör! Myndir koma inn bráðlega!
Ég fór í bíó um daginn á frábæra kellingamynd. MAMMA MIA! hún er alveg hreint yndisleg. En einhverja hluta vegna gat ég bara ekki hætt að hugsa um mömmu og Ingibjörgu móðu þegar ég horfði á myndina... Alveg sé þær í anda... Hef hugsað mér að láta þær syngja ABBA lög þegar/ef ég giftist. hversu magnað væri það??
En frábærir dagar framundan. Ég er að fara austur á föstudaginn. Þar ætla ég í flatkökubakstur hjá ömmu. Þarf að læra það svo það haldist í fjölskyldunni! Þarf að láta ömmu kenna mér líka að laga bestu kæfu í heiminum! Svo er fjölskylduganga plönuð. Þá verður endalausi dalurinn genginn. Vonandi er hann samt ekki endalaus því ég þarf að mæta aftur í vinnu á mánudaginn..
en til næst..
15.7.2008
Jæja HVAÐ?
Það sem hefur drifið á daga mína undandfarið:
- Sóla mig í sundi
- Farið í ræktina
- hætti á matarkúrnum og drekk pepsi max eins og ég eigi lífið að leysa:)
- Fékk Andra heim af sjónum, hann átti afmæli og ég eldaði handa honum nautalund með tilheyrandi. mmmmmmm
- Hangið í Kringlunni
- var sófadýr alla helgina í rigningunni, leigði sjö stykki dvd og borðarði FEITAN mat.... já matarkúrinn algjörlega farinn í vaskinn og ég sé ekkert eftir honum! til hvers að lifa ef maður má ekki borða það sem maður vill?
- Andri farin á sjóinn
- Sprakk hitaveiturör þannig að iðnaðarmenn eru mættir klukkan átta á morgnanna (ókristilegur tími á mínum mælikvarða) og bora með þvílíkum hávaða að páfinn heyrir í þeim!
- Það er fjall af uppvaski vegna þessa hörmunga og sennilega farið að mygla í hinu og þessu... og ég nenni engan veginn að sjóða vatn og vaska upp.... ÆÆ heita vatnið hlýtur að koma á morgun..
- Búin að borða mikið af sushi.. mmmmmmmmm er með æði!
Það sem er framundan:
- Vinna
- fara í "Gúllverjahrepp" í bústað til ma og pa
- Fara út að borða og tjútta með Andrew og Dave kokkum á Fifteen
- fara austur í fjörðinn fagra og ganga endalausa dalinn og kíkja á nýja HÚSIÐ hjá Reyni og Helgu
- afmæli eftir tæpan mánuð...
- og svo auðvitað margt margt fleira!
þangað til næst!
3.7.2008
ást og friður
Viti menn, í fyrsta skipti í 8 ár ætla ég ekki að mæta á Humarhátíð.. og ég græt það svo sem ekki. Árið 2000 mætti ég ekki heldur því þá bjó ég í Austurríki (og var sennilega hauslaus þar..) En mætti þó öll hin árin á undan. Þannig að þetta er mín önnur humarhátíð sem ég missi af. En í staðinn ætla ég samt í sveitina. já ég er að fara í Kjósina að vinna um helgina og fæða svanga veiðimenn. En af hverju þarf allt að vera fyrstu helgina í júlí? má ekki dreifa þessu um allt sumarið? Það er bókstaflega eitthvað um að vera á öllum bæjum á landinu þessa helgi, þetta er "næstum" orðið jafn stór helgi og verslunarmannahelgin ef ekki stærri.. En hvað um það.. ég er alla vega í fríi um verslunarmannahelgina og þar fyrir utan á ég líka afmæli á sunnudeginum. Ég hef engin plön og veit ekkert hvað ég á af mér að gera??

Ég var að byrja í þvílíku matarprógrammi á þriðjudaginn og hætti þar með að drekka pepsi max og kók.. Ég er búin að fara eftir prógramminu og er ýkt dugleg
Nema hvað í gærkvöldi var ég farin að fá þvílíkan hausverk. og þegar ég vaknaði var hann enn verri. Á ég að þurfa að líða fyrir það að hætta að drekka pepsi max! það hefur aldrei liðið svona langur tími síðan ég drakk pepsi eða kók alla vega síðustu 9 árin... já ég ég fíkíll..
Nema hvað í gærkvöldi var ég farin að fá þvílíkan hausverk. og þegar ég vaknaði var hann enn verri. Á ég að þurfa að líða fyrir það að hætta að drekka pepsi max! það hefur aldrei liðið svona langur tími síðan ég drakk pepsi eða kók alla vega síðustu 9 árin... já ég ég fíkíll.. En í lokin bið ég ykkur öll að fara hægt um gleðinnar dyr þessa helgi og í guðanna bænum keyrið varlega... En engu að síður, GÓÐA SKEMMTUN

Ást og friður

Flettingar í dag: 88
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 139991
Samtals gestir: 44645
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 23:53:21
Eldra efni
Um mig
Nafn:
HeiðdísTölvupóstfang:
heiddischef@gmail.comMSN netfang:
hheiddis@hotmail.comAfmælisdagur:
3. ágústStaðsetning:
ReykjavíkÖnnur vefsíða:
http://www.facebook.com/profile.php?id=540042691MySpace vefsíða:
http://myspace.com/heiddischefTenglar
- Afþreying
- B2
- dd-unit
- DV
- Eyjan
- Feimin
- Flickr myndirnar mínar
- Freisting
- Gossip
- La Primavera
- Monitor
- people.com
- Pressan
- Rúv
- Slúður
- Slúðurhomminn
- Textavarpið
- US magazine
- Vísir
- Hornafjörður
- Horn.is
- Hornafjörður.is
- Hornafréttir
- Hornfirðingar
- Anna Jóna
- Árgangur 1981
- Guðrún Arna
- Hafrún
- Jóna Benný
- Jónsi
- Kibba
- Lilla syss
- Lovísa
- Magga
- Sibba
- Svana Björk
- Sædís
- Kokkabrjálæðingar
- Alma
- Helga
- Kokkalingarnir
- kokkur án klæða
- Sigurrós
- Litlu börnin
- Alexander Vilmar
- Alexandra Sif
- Andrea Kristín
- Ari Reynisson
- Eva Lilja
- Haraldur Marínó
- Helena Tindra
- Karen Líf
- Kristín María
- Lea og Saga
- Magnús Máni
- Marína Björk
- Sævar Þór Finnson
- útivist
- Ferðafélag íslands
- ferðalag.is
- Ganga.is
- útivist.is
- Vinir og kunningjar
- Laufey
- Bella
- Einar Logi
- Erna Hrönn
- Helga mágkona
- Margrét Rós
- Snjólaug
- Ættingjarnir
- Álfheiður
- Ellen
- Guðný
- Hallur
- Heiðrún
- Kristín Rut
- Védís

