Blogg
kokkur í klæðum kjaftar:
30.10.2008
Smá könnun! allir að svara..
Hverjir borða spælt egg með hangikjötinu (úppstúfinum og tilheyrandi) á jólunum??
23.10.2008
Gulrótarkaka á la Heiðdís
Bauð mömmu í mat í kvöld. Bauð henni upp á sjávarréttapasta ásamt nýbökuðu speltbrauði. í eftirrétt gaf ég henni svo svolítið sérstaka en góða gulrótar- og möndluköku. Og hér er uppskriftin af henni :
5oo gr gulrætur
250 gr möndluflögur eða hakkaðar möndlur
250 gr sykur
7 egg
teskeið kanill
Aðferð: sykri og eggjum er þeytt vel saman,fínt rifnum gulrótum, möndlunum og kanil bætt út í og hrært saman við. "deigið" sett í smurt eldfast mót og bakað í 40-40 mín við 180C°hita. Mjög gott að bera þeyttan rjóma með eða ís. En í þetta skipti prófaði ég að skella betty crocker frosting krem yfir og það var ógeðslega gott líka
Annars er allt gott að frétta héðan. Gott að hafa mömmu í bænum. Fórum í mat til Heiðrúnar í gær. Takk fyrir mig
Svo ætlum við að taka Möggu móðu með okkur á Sushi train í næstu viku þar sem mamma hefur aldrei smakkað sushi... mmmmm.
En jæja keyrið nú varlega í þessu fárviðri og verið góð við hvort annað
13.10.2008
Spánn
Já maður er mættur í kreppuna! Þetta er nú ljóta "vitleysan". En á þessari síðu verður minnst talað um þetta ástand, það sem við þurfum að hafa í forgang er að peppa hvort annað upp og vera ófeimin á faðmlögin. 

Hvað um það.. Ferðin var að sjálfsögðu æði í góðum félagsskap Andra og FULLT af krumpuleðurdýrum. Mig langaði svo að verða brún, en allt kom fyrir ekki, ég bara verð ekki brúnni en ég er núna. En aftur á móti eru axlir mínar svoleiðis þaktar freknum sem er að sjálfsögðu hraustleikamerki eins og mamma sagði alltaf við mig í gamla daga. En á meðan ég safnaði freknum varð gamla liðið svo svakalega brúnt bara á degi eitt! ég var svo abbó fyrst en þegar leið á tímann var ég svakalega sátt við húðlitinn minn því húðin á liðinu var eins og leður!!

En í stuttu máli ætla ég að punkta niður það sem við gerðum.
- Fyrstu tvo dagana var ég eiginlega svo þreytt og uppgefin á öllu að ég bara svaf... Ég gjörsamlega sofnaði allsstaðar meira að segja í strætó! Andri hnippti í spússu sína þar sem hún sat með höfðuðið aftur og galopinn munninn steinsofandi! hahaha
- Við fórum í tívolí sem er auðvitað alltaf gaman, fórum í flest tækin alla vega þessi stóru. Fórum í eitt versta tæki sem ég hef upplifað (og hef ég nú prófað þau allmörg adrenafíkillinn ég) og jesús minn hvað ég öskraði. Það virtist frekar saklaust en OJ!
- Við fórum í dýragarð og urðum hálfgerðir dýraverndunarsinnar. Sum dýrin eru bara orðin einhverf... Eins og greyið fíllinn sem við sáum ruggaði sér bara fram og aftur.
- Við vorum í litlum bæ sem heitir Albir og er í tíu mínútna fjarlægð frá Benidorm. Við kíktum nokkrum sinnum yfir en fórum oftar í bæinn sem var hinu megin við okkur í 5 mínútna fjarlægð sem heitir Altea. Ofsalega fallegur listamannabær og ekki eins mikið túrista yfirbragð á honum eins og Benidorm.
- Kaffið á Spáni er viðbjóður!
- Við fórum í lítið fjallaþorp sem heitir Guadalest. Þorpið var byggt af Márunum í fyrri tíð og byggðu þeir bæinn inn í klett sem var líka virki þeirra. Ofsalega gaman að koma þangað og skoða eitthvað gjörólíkt strandarmenningunni. Appelsínu- og möndlurækt.
- Síðasta daginn skelltum við okkur til Valencia, þriðju stærstu borg Spánar. Þar er stærsta sædýrasafn í Evrópu. Það var alveg magnað! Fór á geggjaða höfrungasýningu! Það byrjaði reyndar ekki vel. Konan fyrir framan mig fékk flogakast(að ég held) leið yfir hana svo ældi hún svoleiðis yfir sjálfan sig og lagðist svo aftur að ælan gusaðist út um allt. Ég auðvitað algjör auli og byrjaði að kúgast og kúgast því lyktin var agaleg. En konugreyið var færð út í hjólastól og við urðum að gjöra svo vel að finna okkur ný sæti. Svo var alveg endalaust mikið að skoða þarna, milljónir tegunda fiska, hákarlar, mörggæsir og ég veit ekki hvað og hvað. Var reyndar í lokin komin með nett nóg af fiskabúrum, Andri hefði sennilega geta verið þarna í nokkra tíma í viðbót.. En það eru fleiri söfn þarna við sædýrasafnið og alveg magnaðar byggingarnar þarna!
- Svo var bara haft það svakalega huggulegt, borðað góðan mat,lesið, slappað af og notið lífsins.
- Jæja þetta er orðið allt of langt. Set inn fleiri myndir í albúm sem fyrst.
Flettingar í dag: 79
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 139982
Samtals gestir: 44642
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:44:31
Eldra efni
Um mig
Nafn:
HeiðdísTölvupóstfang:
heiddischef@gmail.comMSN netfang:
hheiddis@hotmail.comAfmælisdagur:
3. ágústStaðsetning:
ReykjavíkÖnnur vefsíða:
http://www.facebook.com/profile.php?id=540042691MySpace vefsíða:
http://myspace.com/heiddischefTenglar
- Afþreying
- B2
- dd-unit
- DV
- Eyjan
- Feimin
- Flickr myndirnar mínar
- Freisting
- Gossip
- La Primavera
- Monitor
- people.com
- Pressan
- Rúv
- Slúður
- Slúðurhomminn
- Textavarpið
- US magazine
- Vísir
- Hornafjörður
- Horn.is
- Hornafjörður.is
- Hornafréttir
- Hornfirðingar
- Anna Jóna
- Árgangur 1981
- Guðrún Arna
- Hafrún
- Jóna Benný
- Jónsi
- Kibba
- Lilla syss
- Lovísa
- Magga
- Sibba
- Svana Björk
- Sædís
- Kokkabrjálæðingar
- Alma
- Helga
- Kokkalingarnir
- kokkur án klæða
- Sigurrós
- Litlu börnin
- Alexander Vilmar
- Alexandra Sif
- Andrea Kristín
- Ari Reynisson
- Eva Lilja
- Haraldur Marínó
- Helena Tindra
- Karen Líf
- Kristín María
- Lea og Saga
- Magnús Máni
- Marína Björk
- Sævar Þór Finnson
- útivist
- Ferðafélag íslands
- ferðalag.is
- Ganga.is
- útivist.is
- Vinir og kunningjar
- Laufey
- Bella
- Einar Logi
- Erna Hrönn
- Helga mágkona
- Margrét Rós
- Snjólaug
- Ættingjarnir
- Álfheiður
- Ellen
- Guðný
- Hallur
- Heiðrún
- Kristín Rut
- Védís

