Blogg
30.11.2009
HVERSU DUGLEG...
27.11.2009
Kartöflur..
Kartöflu-
& tómat réttur
6-8 meðalstórar kartöflur - soðnar og skornar í bita
1 stór laukur - gróft skorinn
1dós tómatar í dós
2 stk hvítlauksrif - rifin
2 stk kardimmommur - fræin mulin
1 tsk cumin
1 msk tandoori krydd
1 msk sweet chilli sósa
2 msk brúnn sykur
salt og pipar
safi úr halfri sítrónu
Aðferð:
Setjið tómatarna í dósinni í pott eða pönnu, setjið allt kryddið og sykurinn útí og látið malla í svolitla stund. Bætið þá lauknum og kartöflunum útí og látið malla í nokkrar mínútur í viðbót. Gott er að hafa laukinn pínu stökkan. Smakkið til með salti og pipar.og sítrónu.
Svo bað mamma um uppskrift að sætri kartöflumús. Mín aðferð er mjög einföld og góð. Ég sýð saman sætar kartöflur ásamt venjulegum kartöflum. Sirka 70/30. Þegar það er soðið helli ég vatninu af og mauka saman með písk í pottinum. Hræri smjöri og rjóma saman við, kreisti smá sítrónusafa útí og krydda með salti og pipar.
Svo er ég með aðra sem er mjög góð og hljóðar svo :
Sæt kartöflumús með engifer, coriander og mango
600 gr sætar kartöflur - afhýddar
þumall rifinn engifer
1 tsk kóríanderfræ?
½ mango - afhýdd og skorið í teninga
1 tsk hunang
1 tsk sykur?
appelsínusafi - blandað með vatni eftir smekk
Aðferð: Setjið kartöflur,
engifer, kóríanderfræ, hunang, sykur og pipar í pott og bætið appelsínusafa og
vatni þannig að það fljóti yfir. Þegar kartöflurnar eru soðnar, sigtið þá
appelsínusafann frá og grófstappið kartöflurnar. Blandið í lokin mangóbitum
saman við.
þar til næst!!
25.11.2009
Myndir frá sumrinu
- Var að setja inn fullt fullt af myndum frá síðasta sumri, sumarbústaðarferð, ættarmót/90 ára afmæli ömmu, hringferð, matarborð og fleira.

- Er búin að skrifa á öll jólakortin og kaupa allar jólagjafir nema tvær. Nú er bara að henda upp jólaskrauti og baka smákökur! jólin eru alveg að koma
- Fór að sjá Hellisbúann fyrir nokkru, er svo heppin að eiga góða vinkonu sem gaf okkur hjúunum miðana sína. Sýninging er æði og mæli eindregið með henni. Ég hafði ekki séð "gömlu" sýninguna og vissi í rauninni ekkert um hvað verkið væri. En mikið hlógum við
- Ég hlakka svo til að komast austur um jólin, get vart beðið. Get eiginlega ekki hugsað mér annað en að eyða jólunum annarsstaðar en á Hornafirði. Þó svo að það sé brjáluð rigning og rok, samt jólalegt
- Það er alltaf verið að segja að konur séu alltaf að leita sér af áhugamálum, mig langar svo að gera margt en læt aldrei verða af því, mig vantar kraftinn til að byrja og drífa mig áfram, hvar fæ ég svona kraft?? mig langar til dæmis á ljósmyndanámskeið, söngnámskeið, byrja að æfa blak aftur, mynlistarnámskeið og fara í kór. Tvennt er ég þó byrjuð á að dúlla mér í. Ég er farin að prjóna, jebb þið heyrðuð rétt. Er með barnapeysu á prjónunum og mikið er þetta skemmtilegt enn sem komið er. Þar sem ég ákvað að vera ekki áskrifandi af Skjá einum er lítið um sjónvarp á mínu heimili og þá er það bara lestur í staðinn. Eins og maður var nú duglegur að lesa hérna í denn áður en allar sjónvarpsstöðvarnar komu og internetið! sorglegt.
- Eins og þið sjáið hef ég verið að setja inn uppskriftir og ætla mér að vera duglegri í því á næstunni. vona að þetta geti orðið ykkur að einhverju gagni
og ef ykkur dettur einhverjar uppskriftir í hug er aldrei að vita nema ég geti orðið ykkur að liði.... - Þar til næst..
24.11.2009
Fallegt fólk..
22.11.2009
Thanksgiving
Nú er þakkargjörðarhátíðin
hinum meginn við hafið. Í síðustu viku bauð ég góðvinkonum mínum, Lovísu og
Svönu í Kalkún, fyllingu, sætkartöflumús og tilheyrandi. Ég ætla að skella inn
uppskriftinni af fyllingunni sem er fyrir ca. fjóra og hljóðar svo:
8-12 stk brauðsneiðar -
skornar í bita
6 stk sellerístangir -
skornar í bita
3 stk laukar - grófsaxaðir
lúka salvia - gróf saxað
1 dós blandaðir ávextir -
safinn sigtaður frá
fullt af íslensku smjöri, ca.
200 gr
salt og pipar
Aðferð:
Setjið brauðbitana í ofnfast
mót og inn í ofn við 120 C þar til þeir eru stökkir.
Svissið laukinn og selleríið í
smjörinu á lágum hita þar til það er mjúkt í gegn, bætið þá salvíunni við og
kryddið með salt og pipar. Bætið blönduðu ávöxtunum útí og brauðinu. Hrærið vel
saman.
Ég á svo hrikalega mikið af Baylis inn í skáp, en er ekkert svakalega hrifin af þeim drykk. En skellti því útí eftirrétt og útkoman mjög góð.
Mascarpone-skyr toppur
fyrir 5
250g skyr
150g mascarpone rjómaostur
50g flórsykur
2 dl rjómi, þeyttur
1 dl Baileys líkjör
4 blöð matarlím
Skyr, ostur og flórsykur er hrært vel saman. Þeytta rjómanum bætt við. Matarlíms blöðin eru látin liggja í köldu vatni í 4 mín, Baileys líkjörinn hitaður. Síðan eru matarlímsblöðin sett útí heitan líkjörinn og hrært vel saman, svo ekki myndist kekkir. Líkjörsblöndinni er svo hrært varlega saman við ostinn. Ostahræran er svo sett í heppileg ílát, eða glös og látin kólna í kæli í u.þ.b. 2 tíma. setti karmellu sósu on the top, volla!
þar til næst...
18.11.2009
Kvenlegt annríki

Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalsíum.
Líka eina appelsínu, út af c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það). Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón af þeim á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.
Og annað hvítt fyrir taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.
Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum.
Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta ...
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoleiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti eitt dagblað, tvo vefmiðla og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.
Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir...
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.
Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er segja þér frá þessu í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
12.11.2009
Einfaldur fiskur
Eldra efni
Um mig
Nafn:
HeiðdísTölvupóstfang:
heiddischef@gmail.comMSN netfang:
hheiddis@hotmail.comAfmælisdagur:
3. ágústStaðsetning:
ReykjavíkÖnnur vefsíða:
http://www.facebook.com/profile.php?id=540042691MySpace vefsíða:
http://myspace.com/heiddischefTenglar
- Afþreying
- B2
- dd-unit
- DV
- Eyjan
- Feimin
- Flickr myndirnar mínar
- Freisting
- Gossip
- La Primavera
- Monitor
- people.com
- Pressan
- Rúv
- Slúður
- Slúðurhomminn
- Textavarpið
- US magazine
- Vísir
- Hornafjörður
- Horn.is
- Hornafjörður.is
- Hornafréttir
- Hornfirðingar
- Anna Jóna
- Árgangur 1981
- Guðrún Arna
- Hafrún
- Jóna Benný
- Jónsi
- Kibba
- Lilla syss
- Lovísa
- Magga
- Sibba
- Svana Björk
- Sædís
- Kokkabrjálæðingar
- Alma
- Helga
- Kokkalingarnir
- kokkur án klæða
- Sigurrós
- Litlu börnin
- Alexander Vilmar
- Alexandra Sif
- Andrea Kristín
- Ari Reynisson
- Eva Lilja
- Haraldur Marínó
- Helena Tindra
- Karen Líf
- Kristín María
- Lea og Saga
- Magnús Máni
- Marína Björk
- Sævar Þór Finnson
- útivist
- Ferðafélag íslands
- ferðalag.is
- Ganga.is
- útivist.is
- Vinir og kunningjar
- Laufey
- Bella
- Einar Logi
- Erna Hrönn
- Helga mágkona
- Margrét Rós
- Snjólaug
- Ættingjarnir
- Álfheiður
- Ellen
- Guðný
- Hallur
- Heiðrún
- Kristín Rut
- Védís

