Færslur: 2012 Febrúar

19.02.2012 21:53

Göteborg

Rétt eftir fermingu eða vorið ´95 fluttum við fjölskyldan til Gautaborgar. Innst inni fannst mér það spennandi en á sama tíma ömulegt því ég var jú á hápunkti gelgjunnar. Við fluttum í hverfi þar sem mikið af innflytjendum bjuggu, til dæmis Grikkir, Albanir, Tyrkir og júgóslavar. Sumarið var fínt, fórum í Liseberg, syntum í vatninu hjá Ingibjörgu, fórum í Fimmuna, Lilleby, héldum upp á Midsommar og margt fleira. Svo byrjaði skólinn. Ellen frænka fékk það hlutverk að fara með mér fyrsta skóladaginn. Það byrjaði ekki betur en svo að við fórum í vitlausan skóla..... híhíhí En við komust svo að því í hvaða skóla ég ætti nú að fara í en mættum frekar seint. Það var einn Svíi í bekknum mínum! hann var algjör tossi og mætti að meðal tali tvisvar í mánuði í skólann og mig minnir að hann hafi hætt um áramótin.. Þannig að ég var talin vera eini "svíinn" í bekknum. 
Ég var fljót að ná tungumálinu. En ég átti erfitt með að eignast vini. Ég átti fullt af kunningjum í skólanum en hitti ekki mikið af þeim fyrir utan skólatíma. Mér fannst eins og margir þeirra væru ekki mikið að hitta aðra krakka eftir skólatíma, mikið af þessum krökkum voru alin upp í múslimatrú og fengu kannski strangara og öðruvísi uppeldi en ég. En af og til hitti ég nokkrar bekkjarsystur mínar í vídeógláp. En ég kynntist aldrei sænskum krökkum. Mín besta vinkona var frá Tyrklandi en við misstum fljótt sambandið eftir að ég fluttur aftur heim. Það var ekki fyrr en FB kom til sögunnar að við höfðum samband aftur og þá fann ég líka aðra krakka sem voru með mér í skóla. Mamma tróð mér líka með öðrum en mínum bekk í skíðaferðalag til Noregs. Það var nú ljóta ruglið, var sett á gönguskíði og var á þeim allan daginn og ég gat varla gengið í nokkra daga á eftir! En ég lifði það nú af.. 
Ég fékk líka að fara í starfskynningu sem er mér afar minnistætt því mér fannst hótelið svo svakalega flott. Ég var á hóteli sem heitir Hotel 11 og er við höfnina. Þar fékk ég að hjálpa til við morgunverðarhlaðborðið. 
Áramótunum ´95-´96 gleymi ég ekki. Allir voru í dúndurstuði í fallega húsinu í skóginum hjá Ingibjörgu móðu og Bjössa. En ég ... lá uppí rúmi grenjandi yfir því að vera að missa af öllu fjörinu á Hornafirði... og svo voru líka allir strákarnir sem ég var skotin í að ganga út! hahaha emoticon já það er sko erfitt að vera unglingur.
En án efa besta minningin frá því að ég bjó Gautaborg var þegar Lovísa heimsókti mig. Þetta var hennar fyrsta utanlandsferð. Hún var samferða ömmu og afa því við héldum ættarmót í Noregi þetta sumar ´96. Eftir ættarmótið héldum við svo aftur til Gautaborgar með Lovísu í farteskinu emoticon Við höfðum að sjálfsögðu skrifast á allan tíman eftir að ég flutti út, þá átti enginn tölvur... hvað þá farsíma. Held að stærsta bréfið frá Lovísu hafi verið þrjátíu blaðsíður! maður fékk svo aldeilis "öppdeit" hvað var að gerast í firðinum fagra emoticon Eitt skiptið fékk ég svo senda kassettu þar sem hún hafði talað inn á ásamt Svönu og Stefaníu. í dag myndi maður eflaust nota skype emoticon En þegar hún kom sýndi ég henni allt það mögulega sem ég gat sýnt henni í borginni og að sjálfsögðu fórum við í Liseberg. Við eyddum heilum degi frá morgni til kvölds í öllum mögulegum tækjum sem við komust í ekki bara einu sinni heldur að minnsta kosti sjö sinnum! enda komum við heim alveg snarruglaðar og grænar í framan! 
En um haustið fluttum við svo aftur heim til Íslands. Við tókum Norrænuna heim með stoppi í Færeyjum. Þar löbbuðum við um alla Þórshöfn og skoðuðum okkur um. Ekki fyrir svo mörgum árum fer Hafdís að spyrja um sumarfríið sem við fórum gangandi í og gistum hjá síðskeggjuðum manni... Ekki nema von að hún spyrji, hún var ekki nema fimm ára og það má eiginlega segja að við höfum farið fótgangandi í þetta frí því við vorum ekki á bíl, heldur sigldum við yfir hafið og gengum svo í landi.. Við gistum reyndar á gistiheimili þar sem eigandinn var með afar sítt skegg emoticon EN það er nú önnur saga!
Þó svo að ég hafi verið á verstu gelgjunni og oft á tíðum vildi ég bara komast aftur heim á Hornafjörð til vina minna var þetta ótrúlega gaman og skemmtilegar minningar sem ég á frá Gautaborg og ég gæti alveg hugsað mér að búa þar í dag. Ég hef komið tvisvar til Gautaborgar eftir að ég flutti þaðan. Fyrra skiptið vorum við Svana að flytja heim til Íslands frá Austurríki árið 2000 og ákvaðum að "Koma við" í leiðinni.Þetta var 25 tíma ferðalag frá Velden í Austurríki með lest og alla leið til Gautaborgar. Við sváfum fyrir utan lestarstöðina í Malmö að nóttu til með fullt af farangri, ekki séns að ég myndi þora því í dag! Enda vorum við búnar á því þegar við loks komum á áfangastað, gistum í skóginum í Ingibjörgu móðu. Seinna skiptið ákvaðum við mæðgur, ég, Hafdís og mamma að fara saman sumarið 2005. Við gengum um hverfið sem við bjuggum í, og hvað haldiði! Hafdís hittir vinkonu sína þar frá því ´95! ótrúlega skemmtilegt. 

En nú er komið að því að ég ætla að heimsækja Gautaborg í þriðja skiptið eftir að ég flutti og það ásamt allri familíunni og mökum að sjálfsögðu. Þetta var algjörlega skyndiákvörðun! Mikið verður þetta nú gaman emoticon 


Þar til næst!

11.02.2012 14:48

11. febrúar

Frábær sviðaveisla að baki. Fólkið hans Andra kom til okkar í gærkvöldi og saman borðuðum við Svið (sumir fengu líka kjúkling, nefni engin nöfn...emoticon) Mikið spjallað, hlegið og svo var tekið á því í P3 move, og fólk fór löðrandi sveitt heim til sín hahaha :) Sátum svo og spiluðum kana fram eftir. Bara ljúft.

Auður dafnar voða vel. Er farin að fá að borða fjórum sinnum á dag og finnst það nú ekki lítið skemmtilegt! Þess á milli segir hún dadada í gríð og erg og smælar svo framan í myndavélina emoticon

Í kvöld er það svo kósíheit með Eurovision og kallinum. Ætla að kjósa Mundu eftir mér! Finnst reyndar Hugarró líka mjög flott... Áfram Ísland bara emoticon

Nýjar myndir komnar inn og ætla að skella inn einu myndbandi líka!



SVIPUR?

Þar til næst.
  • 1
Flettingar í dag: 33
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 86
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 211535
Samtals gestir: 62868
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 14:32:36