23.01.2012 13:44

Lazagne, pekanhnetur og möndlur

Ég fékk heilsurétti Hagkaupa eftir Sollu í jólagjöf frá ektamanninum í ár. Og ég er búin að vera að prufa hinar og þessar uppskriftir úr bókinni, sumar betri en aðrar. En þetta lazagne sem ég gerði er alveg to die for! Held ég geti borðað það í öll mál hér eftir... En þar sem ég get engan veginn farið 100% eftir uppskriftum þá breytti ég henni svolítið og læt hana fylgja hér:



Fyrir fjóra:

4 stykki eggaldin - skorin í 1/2 cm sneiðar
ólífuolía
salt og pipar
pizzakrydd
chilliflögur

Hrærið ólífuolíu og kryddinu saman og penslið eggaldinsneiðarnar. Setjið þær síðan í ofnskúffu og bakið á 220°C í 6 mín á hvorri hlið.

Sósan:
2 dósir maukaði tómatar í dós
4 msk tómatpúrra
1 stk laukur - saxaður
6 stk gulrætur - skrældar og saxaðar smátt
2 stk hvítlauksrif - pressuð
1tsk paprikukrydd
1 tsk karrí
1 tsk pizzakrydd
1 tsk basil
1 tsk chilliflögur
salt og pipar

Steikið gulrætur og lauk upp úr olíu og kryddið með kryddunum, bætið svo tómötunum og púrrunni við og leyfið að malla á lágum hita þar til gulræturnar mýkjast. 

svo þurfum við:
1 stór dós kotasæla
parmesan 
brauðraspur

Aðferð:
Setjið í eldfast mót, eitt lag af tómatsósunni, eitt lag egganlin og svo eitt lag kotasæla. Þetta er endutekið 2-3 sinnum, fer eftir stærðinni á fatinu. Í lokinn blandiði saman parmesan og brauðrasp og stráið yfir. Bakað í ofni í 20 mínútur við 200°C. 

Annað sem er ótrúlega gott úr bókinni hennar Sollu sem "snakk" ætla ég að deila með ykkur hérna.



Sætar pekanhnetur:
 (á neðsta bakkanum)
4 dl pekanhnetur
1/4 dl agave
1 tsk cayennepipar
1/2 tsk sjávarsalt

Hrærið saman agave, cayenne og salti og veltið hnetunum uppúr því, Setjið á ofnplötu og bakið við 200°C í 5-7 mínútur.

Tamari möndlur:

4 dl möndlur
1/4 dl tamarisósa
1 msk laukduft
1/4 tsk sjávarsalt

Hrærið saman tamari, laukduftinu og salti og veltið möndlunum upp úr því og setjið á ofnplötu og bakið við 200°C í 5-7 mínútur.

Þar til næst..


18.01.2012 14:02

Dunderí

Þessa dagana er varla fært út úr húsi vegna veðurs. Ég er farin að sakna göngutúrana alveg herfilega mikið! En ég hef svo sem ekki setið auðum höndum hérna heima, svona á milli þess sem ég skrepp á fésbókina og gef brjóst.. hausinn á mér fór á flug, og ég fór að föndra mér ýmislegt til dundurs sem ég gat notað til skreytingar. Þegar maður er í fæðingarorlofi eru peningar oft í skornum skammti og þá er bara um að gera að nýta það sem til er. Hérna er afraksturinn:





Hérna er ég með fullt af allskonar glerkrukkum, í botninn setti ég baðsalt með kókós og vanilluilmi, vafði svo einhverjum stráum utan um þær og svo sprittkerti og voila!



Hérna notaði ég nokkrar vín- og olíuflöskur og nýtti undir blóm og frískaði aðeins upp í svefnherberginu:)



svo má ekki gleyma herberginu hennar Auðar! einn "vasi" þangað líka. Málverkin á bakvið eru eftir Svönu Björk vinkonu emoticon

Svo er ég að nýta fullt fullt meira sem er í bígerð... heimilið mun líta út eins og einhver endurvinnslustöð innan skamms emoticon

þar til næst

08.01.2012 17:19

Árið 2011 gert upp!

Heil og sæl! Gleðilegt nýtt ár 2012! "Time flies when you are having fun" eins og einhver gáfulegur sagði emoticon

Búin að hafa það undursamlegt yfir hátíðarnar. Við brunuðum austur í fjörðinn fagra og vorum þar yfir jólin en skautuðum síðan á milli jóla og nýjars suður aftur. já það má segja að ég hafi fengið vott af vöðvabólgu eftir heimferðina, þetta var algjört djók, við runnum suður á svelli.. 
Buðum svo Írisi og Dóru til okkar um áramótin og sátum við og spiluðum fram á nótt! 

Er ekki hefð að fara yfir farinn veg á þessu bloggi? Ég held það nú. 

Árið 2011

Bestu fréttirnar voru auðvitað þær að við ættum von á litla gullinu okkar. Við komust reyndar að því í nóvember, en í janúar fórum við í tólf vikna sónarinn þar sem allt kom glimrandi vel út! og þá var bara að spreða út fréttunum!

"surprise" ferðin austur stendur líka uppúr, það var svo gaman að sjá svipinn á fólkinu þegar ég mætti þarna öllum að óvörum. Svo ég tali nú ekki um flugferðina/kennsluna á leiðinni austur!

Í maí hittumst við svo familían í bústað í Grímsnesinu til þess að fagna 55 ára afmæli pabba. Allir mættu með heimatilbúna leiki hverjum öðrum flottari! svo var pottapartý,kubbkeppni og að sjálfsögðu grillveisla. Þetta var svo gaman að við ákvaðum að gera þetta að árlegum viðburði. (spurning um að fara að panta bústað..?)




Seint gleymi ég rútuferðinni frá Hornafirði og suður til Reykjavíkur sem ég eyddi á 17.júní. Það var sko stoppað á öllum stöðum og þá meina ég ÖLLUM! og ekki í neinar tíu mínútur heldur klukkutíma sumstaðar! þarna var ég komin 8 mánuði á leið og hélt ég myndi eiga í rútunni með öllum skítugu túristunum emoticon 

En í júlí var svo komið að stóru stundinni. Ég fór í fyrirfram ákveðinn keisara þar sem Auður vildi bara sitja og hafa það huggulegt. Þann nítjánda mættum við Andri eldsnemma upp á deild bæði spennt og stressuð..

Andri reddí í slaginn, og stuttu seinna kom svo daman

Yndisleg :)

Í lok ágúst fékk daman svo nafnið sitt Auður við mikla athöfn. Enda er hún litli auðurinn okkar Andra :) Við héldum stóra veislu á La Primavera sem var sú allra síðasta sem haldin var þar, því svo var staðnum lokað. Vinnustaðnum mínum til rúmra tíu ára.. Flott að enda þetta á skírnarveislunni hennar Auðar og þrítugs afmæli mínu emoticon


Ég hlakkaði ekki lítið til að kynna ömmu og afa fyrir austan fyrir Auði, vegna aldurs geta þau ekkert ferðast lengur, en þau voru svo ánægð að sjá hana emoticon þegar við skunduðum austur í september.


Já þetta er búið að vera dásamlegt ár í alla staði og ekki nóg með að nýja hlutverkið fari mér vel heldur er það líka mjög skemmtilegt. Að vera í fæðingarorlofi er yndislegt! 
Árið 2012 verður eitthvað! Ég þarf að finna mér nýja vinnu sem ég hlakka mikið til og litla skottið verður eins árs... emoticon


Eigið góðar stundir gott fólk...
...þar til næst!

07.12.2011 23:54

Hláturskast!


Horfa á myndband


Var að setja inn myndband af Auði. Ég skrapp að pissa og henti Auði í Svönu á meðan og hún var líka svona svakalega fyndin emoticon Auður var örugglega búin að hlægja stanslaust í þrjár mínútur áður en ég byrjaði að mynda... 

Farið inn í linkinn Mynbönd hérna að ofan, þá er hægt að horfa beint á það!
    Flettingar í dag: 63
    Gestir í dag: 12
    Flettingar í gær: 64
    Gestir í gær: 16
    Samtals flettingar: 202703
    Samtals gestir: 60403
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 12:10:43